Velkomin á Dikki Mó síðuna!!!
   

<< January 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31

Hinn Fagri Fjörður!! Myndir

Myndasíðan mín!!
Nýja síðan

Bloggarar

Tinna mín
Harpa systir
Birkir
Apríl
Sigmar Bóndi
Margrét Elísa
Davíð Þór
Guðrún Eir
Logi Helgu
Kristín Dröfn

Ýmsir Tenglar

Fótbolti.net
Huginn
Kvikmynd.is
Soccernet
Seyðisfjörður
B2.is
Google
Leikjanet
Senda sms
Morgunblaðið
Vísir.is
Austurlandið
Símaskrá

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Friday, March 02, 2007
Nýtt blogg

Er að spekúlera.... í að færa mig yfir á blog.central og blogga þar. Ég hef einfaldlega ekki í mér að blogga hér lengur, þetta er leiðindablogg og stundum kemst ég ekki inná það og það er BARA leiðinlegt! Nýja bloggið mitt er hér.

ADIOS !!!!


Posted at Friday, March 02, 2007 by dikki
Make a comment  

Saturday, January 13, 2007
Gleðilegt nýtt ár allir!!

Vil byrja á því að óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs og þakka fyrir það gamla.

Ég rakst á bloggið hans Simma í Kastljósi þar sem hann talar um Duran Duran og að honum finnist Duran glötuð sveit. Gott og blessað en svo er fólk að drulla yfir hann í commentum og í e-meili og það finnst mér ekki alveg í lagi, halló! Honum finnst Duran lélegt band og það er bara hans skoðun og hann á að fá að hafa hana í friði.

Mér finnst til dæmis Pink Floyd ömurleg hljómsveit og í raun ofmetin því ég aldrei skilið þessa aðdáun á jafn glataðri sveit. Þar hafiði það, en þetta er mín skoðun og má ég ekki bara hafa hana í friði? Ég þykist vita að einhverjir eru mér ósammála og þeir um það og það er þeirra skoðun og læt þá alveg í friði með það. Ég er þeirrar skoðunar að það eigi að gefa hljómsveitum sjens þó þær hljómi ekki vel við fyrstu hlustun t.a.m. Pink Floyd en sama hversu oft ég reyni að gefa þeim sjens að þá finnst mér þeir bara verri og verri. Ekki hljóta samt allar sveitir sem hljóma illa við fyrstu hlustun hjá mér sömu örlög og Pinkararnir, alls ekki. T.d. System of a down fílaði ég engan veginn við fyrstu hlustun en í dag er þetta eina af mínum uppáhaldssveitum.

Ég lét í ljós þessa skoðun mína á Pink Floyd við einn félaga minn og sá var ekki alls kostar ekki sáttur og lét mig bara hafa það óþvegið, reyndar undir áhrifum áfengis og daginn eftir bað hann mig afsökunar og sagði mér að ég ætti fullan rétt á minni skoðun og þetta væri einfaldlega minn smekkur og hann virti það. Tek ofan fyrir þessum félaga mínum og vonandi eru fleiri eins og hann þarna úti.

Ég kveð í bili.....


Posted at Saturday, January 13, 2007 by dikki
Comment (1)  

Sunday, December 24, 2006
Gleðileg Jól!!

Ég vil óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Lifið heil!!


Posted at Sunday, December 24, 2006 by dikki
Comment (1)  

Friday, December 01, 2006
Afmæli!!

Í dag á hún Sigrún tengdamóðir mín afmæli og fær hún mínar bestu kveðjur!!

Í dag er líka Fullveldisdagurinn, til hamingju Ísland!!

Í dag eigum við Tinna 5 ára afmæli, Til hamingju við!!!!


Posted at Friday, December 01, 2006 by dikki
Comment (1)  

Monday, November 20, 2006
Frí

Það hefur verið talað um að ég sé ekki nógu duglegur að blogga og það er alveg rétt, ég er ekki að nenna þessu en læt mig hafa það svona annað slagið.

Núna er ég kominn í vikulangt frí frá Fjarðarheiðinni en ég er samt ekkert svakalega sáttur með það sko. Málið er að yfirmönnunum leist ekkert á spána fyrir mán og þri.dag og ákváðu að allir færu bara heim enda úthaldið að verða búið ef úthald skildi kalla. Jæja ok, lítið við því að gera en þetta úthald er búið að vera einhvern veginn svona: Veðurtepptur á mán og þri.dag á Akureyri, vinna til 17 á miðvikudag, heima á fim. og föstudag. vinna til 19 á laug.dag og svo í 4 tíma á sunnudag, alveg æðislegt eða hitt þó heldur!!

En það sem fær mann til að brosa er að hún Tinna mín ætlar að láta sjá sig hér um helgina og jafnvel eitthvað fyrr sem er BARA æði! Stelpan er nefnilega á kafi í verkefnavinnu í háskólanum og ég held að hún hafi bara gott af því að koma aðeins austur og ná áttum og slaka aðeins á!!

Annars er svo bara ekkert meira að segja annað en það að það er ótrúlega mikill snjór hérna og ca. 1,5m löng grýlukerti fyrir neðan húsið hjá Ma og Pa. Og já eitt enn, ég er búinn að stúdera jólagjafirnar í ár, er búinn að kaupa allar nema 3 og hitt er allt í góðum farveg....

Þeir sem vilja fá jólakort frá mér í ár geta kommentað hér fyrir neðan...


Posted at Monday, November 20, 2006 by dikki
Comments (2)  

Friday, October 27, 2006
Helgarfrí!!

Núna er maður staddur á Akureyri að heilsa uppá hana Tinnu sína. Mikið er nú gott að vera kominn hingað, það fór bara fiðringur um mig þegar ég renndi í bæinn á miðvikudagskvöldið, tilhlökkunin var það mikil.

Ég kíkti áðan á sambýlið minn gamla vinnustað og hitti þar einn sem var ánægður að sjá mig, fékk bara knús og hvaðeina það var voða gott. Í gærkvöldi kíktum við skötuhjú í bíó og sáum Mýrina og urðum ekki fyrir vonbrigðum, held bara svei mér þá að þetta sé ein besta íslenska mynd sem ég hef séð!!

Í kvöld er svo stefnan sett á að kíkja út á lífið með Simma og Hans félögum mínum og auðvitað Tinnu og rifja aðeins upp gamla tíma, ég hlakka bara til!

Í lokin er svo kannski best að geta þess að Huginn eru búnir að ráða þjálfara fyrir næsta tímabil og er það enginn annar en Guðmundur Magnússon seyðfirðingur með meiru og fyrrv. þjálfari kvennaliðs Breiðabliks.

Þangað til næst, ADIOS!!!!


Posted at Friday, October 27, 2006 by dikki
Comment (1)  

Friday, October 20, 2006
No Title!!

Ég veit aldrei hvað ég á að skrifa í þessa blessuðu fyrirsagnir og ef ég ætla að sleppa því þá gúdderar tölvu druslan það ekki og ég lendi í vandræðum.
Íslendingar ætla að fara að veiða hval á ný og því ber að fagna og ég tek ofan fyrir yfirvöldum og kominn tími til enda er loðna, síld og kolmuni að hverfa úr höfunum sem er EIN helsta fæða þessara dýra. En vöntun á þessum tegundum má að einhverju leyti skrifa á ofveiði en ALLS EKKI að öllu leyti!!
Ma & Pa komu heim frá USA í gær og ég verð nú að játa það að það er voða gott að fá þau heim, manni leiðist þá kannski ekki alveg jafn mikið. Þau komu með myndir að litlu frænku í USA og hún er voða sæt og ég er ekki frá því að hún sé pínu lík Pabba! Matthildur hoppaði hæð sína þegar þau komu inn um dyrnar og krafðist þess að fá að kúra hjá þeim um nóttina, til að gera langa sögu stutta þá fékk Matthildur sínu fram!

Í dag fór svo mamma og sótti ömmu til að hafa hana hér um helgina því annars hefði hún þurft að vera hjá henni á Egilsstöðum því ekkert er plássið inná sjúkrahúsinu þar og amma er nú bara orðin það öldruð að hún getur ekki lengur verið ein. En engin úrræði eru fyrir hana. Frekar slappt hjá Norður-Héraði sem auglýsa grimmt í fjölmiðlum um að fólk eigi að flytja þangað því þar sé svo gott að vera, en svo getur þetta sveitafélag ekki veitt þá grunnþjónustu sem maður hefði haldið að gömul kona eins og amma ætti skilið, kona sem er búinn að vinna hörðum höndum alla ævi og alltaf borgað skattana sína, er þetta réttlátt?? Maður spyr sig.

Posted at Friday, October 20, 2006 by dikki
Comments (3)  

Monday, October 16, 2006
Ekki alveg með þetta..

Ég er að klikka illa á blogginu, var víst búinn að lofa bloggi í síðustu viku en jæja seint koma sumir en koma þó. Þessa stundina eru hjónakornin Stefán og Árdís í USA að skoða nýjasta barnabarnið og eru víst alveg í skýjununm enda varla annað hægt.

Tinna er farin norður í skólann og ég því bara aleinn hérna heima með Fr. Matthildi sem passar mig á meðan. Stefnan er svo sett á ferð norður eftir 10 daga því þá á ég víst frí. Um helgina skrapp ég á ball á Fáskrúðsfirði með Á Móti Sól og það var ekkert nema stuð og alveg örugglega hátt í 700 manns á balli og því stærsta ball þar í bæ frá upphafi, frábært framtak þar á ferðinni.

Það er mús hérna inni í húsinu og hún er í þvottahúsinu og ég næ henni ekki, Matthildur færði mér þessa mús í trú um að ég myndi kunna vel að meta framtakið en einhverjir samskiptaörðuleikar eru í gangi hjá okkur þessa stundina því ég er alltaf að banna henni að koma með mýs en samt kemur hún alltaf með eina og eina handa mér Angry. Held að músin sé undir frystiskápnum og ekki séns að ná henni þaðan, fyrst var hún undir þvottavélinni en ég náði henni þaðan með veiðistöng og var alveg að ná henni þegar hún skaut sér undir frystiskápinn. Núna er því bara opið út og lokað inní hús og ég er að vona að músin forði sér í dag. Í tilefni dagsins ber að líta þessa stórglæsilegu mynd, er maður ekki flottur??!

Bless í bili, sjáumst hress, ekkert stress, veriði bless...!!!


Posted at Monday, October 16, 2006 by dikki
Comment (1)  

Sunday, September 10, 2006
Nýtt blogg

Er ekki kominn tími á nýtt blogg? Jú ég held það bara. Ég hef einfaldlega engann veginn nennt að blogga í sumar en nú er kominn tími til að henda einhverju hingað inn. Ég er hættur hjá Flugmálastjórn og farinn að vinna hjá Afrek verktökum sem eru að byggja virkjun á Fjarðarheiði. Þar er maður að keyra 30 tonna trukk og ég kann bara ágætlega við það, það er lítið öðruvísi en að keyra venjulegan bíl og í rauninni auðveldara ef eitthvað er þó að stærðarmunurinn sé rosalegur! Þegar búið er að fylla pallinn á bílnum vegur hann einhver 70 tonn. Maður vinnur pínu mikið, erum að vinna 10 daga og svo eru 4 í frí og vinnutíminn er frá hálf átta á morgnanna til tíu á kvöldin. Vinnufélagarnir eru allir snillingar, rosa hressir og flestallir á mínum aldri sem er bara gott mál.

Ég sé samt mikið eftir vinnunni á vellinum enda var það bara tær snilld og ekki útilokað að ég verði eitthvað þar næsta sumar en það verður bara að koma í ljós, það stendur allavega til boða.

Ég er búinn að mála 2 herbergi hér heima og hjálpa til í garðinum og einnig í húsinu.

Knattspyrnufélagið Huginn er fallið úr 2.deildinni en við komum bara sterkir til leiks næsta sumar og rúllum þessu upp er það ekki?!

Meira held ég að hafi ekki á daga mína drifið þetta sumarið.

Endilega kommentið svo!!


Posted at Sunday, September 10, 2006 by dikki
Comments (5)  

Sunday, July 30, 2006
Lifandi

Vildi bara láta fólk vita að ég er á lífi ef þið skylduð hafa haldið annað.....
Er núna staddur á Frönskum dögum hér á Fáskrúðsfirði og það er búið að vera fínt bara...jájá bara helv... gott. Eini gallinn í ár er að er búið að vera blautt hér í bæ alla helgina og í dag sunnudag er hellidemba. Hljómsveitirnar í gær voru fínar og ég er sérlega ánægður með að  það hafi verið skipt um hljómsveit, bara til að breyta til.
En lengra verður þetta blogg ekki og þangað til næst....

Posted at Sunday, July 30, 2006 by dikki
Comments (2)  

Next Page